Til að stilla opnunartíma á netsölu þarf að fylgja eftirfarandi skrefum :
Farðu í Company → Locations.
Veldu staðsetninguna sem þú vilt breyta.
Smelltu á Opening hours for online ordering.
Veldu fyrst hvaða regla á að gilda um opnunartíma staðsetningarinnar:
Location is open based on opening hours – Netverslunin er aðeins opin á skilgreindum opnunartíma staðsetningarinnar.
Location is always open – Netverslunin er opin allan sólarhringinn, en viðskiptavinir geta aðeins valið afhendingartíma innan skilgreinds opnunartíma staðsetningarinnar.
Location is always closed – Netverslunin er lokuð.
Stilltu opnunartíma fyrir hvern vikudag. Ef opnunartími er sá sami og daginn á undan getur þú einfaldlega smellt á Same as previous weekday.
Hægt er að skrá fleiri en eitt tímabil á sama degi með því að smella á + Add another opening hour. Þetta gæti átt við ef netsalan er lokuð milli 14:00 - 17:00 sem dæmi
Þegar þú hefur stillt opnunartímann skaltu skruna neðst á síðuna og smella á Save til að vista breytingarnar.