Tengja posa við sölukerfið

Hvernig virkar posatenging?

Hægt er að tengja posa frá LandsbankanumStraumi og Teya við sölukerfi Noona. Með því hoppar upphæðin beint í posann um leið og þú velur greiðslukort sem greiðslumáta í Noona HQ og reikningurinn merkist sem greiddur um leið og posafærslan fer í gegn. Þetta tryggir það að reikningar séu að stemma við færslur í posanum, réttur posi sé valinn við afgreiðslu og síðan skapar þetta auðvitað aukin þægindi & tímasparnað.


Setja upp posatengingu

Ert þú að nota Noona HQ í vafra eða appið? Það skiptir ekki máli á hvorum staðnum þú tengir posann en hér fyrir neðan eru leiðbeiningar fyrir hvoru tveggja.


Ertu verktaki?

Áður en þú byrjar á því að tengja posann passaðu þá upp á að eftirfarandi atriði séu í lagi:

1. Þú ert skráð/-ur inn á þinn eigin Noona HQ aðgang. Ef þú ert ekki viss geturðu farið undir Stillingar -> Almennt og séð þar netfangið sem         er innskráð.

2. Sért skráð/-ur sem verktaki í sölukerfinu. Smelltu hér til þess að finna upplýsingar um hverngi það er gert.

3. Nú er allt klárt og þú getur fylgt leiðbeiningunum hér að neðan.

Verifone (Landsbankinn)

Tengja posa frá Verifone (Landsbankinn) ➡️ Smelltu hér

Teya

Tengja posa frá Teya ➡️ Smelltu hér

Straumur

Tengja posa frá Straumi ➡️ Smelltu hér


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna og ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛