Ef þú ert með fleiri en eina stofu/staðsetningu og vilt birta stofurnar saman á vefsíðunni þinni eða inni á Noona appinu þá mælum við með að notast við útibú.
Hvernig bý ég til nýtt útibú?
Byrjaðu á því að opna Valmyndina -> Stillingar -> Útibú.

Undir upplýsingar um keðju setur þú inn nafn, prófílmynd og opnunarmynd sem þú vilt hafa fyrir keðjuna sem er yfir öllum útibúunum.
Til þess að stona nýja útibúið smellir þú á Nýtt útibú.
Síðan setur þú inn nafn, stærð fyrirtækis, símanúmer og staðsetningu á nýja útibúinu.

Við það verður til nýr Noona HQ aðgangur með eigin uppsetningu, þjónustulista, starfsfólk og Noona prófíl.
Undir upplýsingar um útibú getur þú svo séð og haldið utan um öll útibúin þín og fært þau yfir í aðra keðju ef það á við.


Efst í hægra horninu getur þú síðan séð öll þau útibú sem þú ert með aðgang að og auðveldlega flett á milli þeirra.

Hvernig birtast útibú á Noona?
Þegar að leitað er að útibúum á Noona koma þau bæði upp sem keðja og í sitt hvoru lagi.

Hvernig get ég stjórnað vefslóðinni?
Undir Stillingar -> Sýnileiki er hægt að ráð vefslóðinni á keðjunni og útibúinu.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef að þú lendir í vandræðum ❤️