Stillingar fyrir afhendingartíma netpantana

Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is

Slots (afhendingartími) eru stillt undir Company → Locations.

Smelltu á viðkomandi staðsetningu og opna síðan Slots sem er neðst í valmyndinni.
Ef þú hefur ekki þegar stillt opnunartíma staðsetningarinnar þarftu að byrja á því.

Undir Slots eru fjórar stillingar: Wait Time, Max Sales per Slot, Interval Between Slots og Pause Between Slots.

  • Wait Time – Stýrir því hvenær fyrsti lausi afhendingartíminn er í boði. Ef reiturinn er auður eða stilltur á 0 mínútur er fyrsti lausi tíminn 30 mínútum eftir að pöntun er gerð.
  • Max Sales per Slot – Stýrir hámarksverðmæti pantana sem hægt er að taka á móti á hverju tímabili.
    Til dæmis: Ef hámarkið er stillt á 15.000 kr. og viðskiptavinur pantar fyrir 10.000 kr. með afhendingu kl. 13:00, getur annar viðskiptavinur valið sama tíma með pöntun upp á 5.000 kr. Eftir það lokast tíminn kl. 13:00 fyrir frekari pantanir þar sem samanlagt verðmæti pantana hefur náð eða farið yfir 15.000 kr.
    Athugið: Aðeins netpantanir telja upp í þetta hámark. Sala í POS hefur ekki áhrif.
  • Interval Between Slots – Stýrir hversu langt er á milli lausra afhendingartíma. Sjálfgefið er 15 mínútur. Lausir tímar gætu því til dæmis verið 13:00, 13:15, 13:30, 13:45 o.s.frv.
  • Pause Between Slots – Bætir við hléi á milli tímabila. Þessa stillingu ætti almennt ekki að nota fyrir netpantanir heldur bara viðburði.
    Dæmi: Ef um bókanir er að ræða þar sem hver bókun tekur 50 mínútur og þú vilt hafa 10 mínútna hlé á milli, til dæmis til að ganga frá eða þrífa, stillir þú Pause Between Slots á 10 mínútur.