Afgreiðsluferlið er einn mikilvægasti partur sölukerfisins. Þegar viðskiptavinir kaupa hjá þér vörur og þjónustur þá er salan afgreidd í sölukerfinu. Þar sem sölukerfið er samþætt bókunarkerfinu þá gerir það ekki bara einfalt og fljótlegt að afgreiða viðskiptavini, heldur næst á sama tíma að grípa mikilvægar upplýsingar um kaupsögu þeirra án þess að það taki lengri tíma í afgreiðslu.
Afgreiða tíma
Það eina sem þú þarft að gera til þess að afgreiða tíma er að:
- Smella á bókunina.
- Velja Afgreiða.
- Athuga hvort verðið sé rétt og jafnvel bæta við vöru.
- Smella á Greiða og velja greiðslumáta og þá er allt komið! ✨
Ef þú vilt sjá reikninginn strax getur þú svo smellt á "Klára sölu".
Eftir að reikningurinn hefur verið stofnaður er einnig hægt að velja "Bóka aftur" til þess að afrita tímann og finna næsta tíma með viðskiptavininum.
Afgreiddir tímar fá lítið hvítt v- merki efst í hægra horninu til þess að auðvelt sé að sjá hvaða tímar hafa verið afgreiddir og hverjir ekki með því að horfa á dagatalið.

Afgreiða vörur
Þegar að viðskiptavinir sem að hafa ekki átt tíma koma til þín og vilja kaupa vöru eða gjafabréf er best að:
- Velja blá "Ný sala" takkann niðri í hægra horninu.
- Veldu réttan útgefanda ef það eru fleiri en einn
- Þú getur leitað eftir vörum, valið þær af listanum eða skannað þær inn með barkóða.
- Smella á Greiða og velja greiðslumáta og þá er allt komið!✨

Efst á sölunni er lítil leitarstika þar sem hægt er að leita að viðskiptavini. Það getur verið sérstaklega sniðugt að nýta sér hana þar til þess að salan fari inn í kaupsögu viðskiptavinarins, en þetta gerist sjálfkrafa þegar að tímar eru afgreiddir af dagatalinu ⬇️

Ertu með einhverjar ábendingar eða spurningar? Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna 💛