
Móttakan þín er mikilvægur staður til að taka vel á móti viðskiptavinum. Þar fá viðskiptavinir tækifæri til þess að kynnast stofunni betur og mynda sér skoðun á fyrirtækinu.
Óreiðufull móttaka með löngum biðröðum eða engu/-um sem tekur á móti manni getur komið viðskiptavinum úr jafnvægi.
Sjálfsafgreiðslukerfi Noona er auðvelt og þægilegt fyrir bæði fyrirtæki og viðskiptavini. Viðskiptavinir þurfa ekki að bíða í röð lengur heldur stjórna þau ferðinni.
Ávinningurinn fyrir fyrirtækið felur í sér aukna hagræðingu sem getur bæði dregið úr kostnaði og skapað önnur mikilvægari og virðisaukandi störf innan fyrirtækisins.
Hvernig virkar þetta?
Sjálfsafgreiðslukerfi Noona gerir þér kleift að stilla upp spjaldtölvu í afgreiðslu/móttöku, þar sem skjólstæðingar geta sjálfir skráð sig inn í tímann hjá sér og greitt fyrir þjónustuna í gegnum smáforrit sem við útvegum.
Það eru tvær mismunandi útfærslur af lausninni:
Innskráningarkerfi
- Skjólstæðingur mætir, setur símanúmerið seitt inn í spjaldtölvu og smellir á "skrá mætingu".
- Sjálfsafgreiðslukerfið athuga hvort viðkomandi eigi bókaðan tíma sama dag og ef svo er, þá setur kerfið inn græna "Mætti" merkið á tímann. Ef að fleiri en einn tími er bókaður er hægt að skrá sig inn í þá líka.
- Fagaðilar og móttaka sjá að viðkomandi er mættur (græna "Mætti" merkið er komið á tímann).
- Móttökuskilaboð birtast á skjánum við lok innskráningar (valfrjálst).
Innskráningarkerfi + greiðslulausn
- Skjólstæðingur mætir, setur símanúmerið sitt inn í spjaldtölvu og smellir á "skrá mætingu & greiða".
- Sjálfsafgreiðslukerfið athugar hvort viðkomandi eigi bókaðan tíma sama dag og ef svo er, þá setur kerfið inn græna "Mætti" merkið á tímann. Ef að fleiri en einn tími er bókaður er hægt að skrá sig inn í þá líka.
- Upphæðin fyrir þjónustunni birtist í posanum og viðkomandi greiðir.
- Fagaðilar og móttaka sjá að viðkomandi er mættur (græna "Mætti" merkið er komið á tímann) og reikningur hefur stofnast sjálfkrafa í sölukerfinu.
- Móttökuskilaboð birtast á skjánum við lok innskráningar (valfrjálst) og val um að senda sér kvittun í tölvupósti.
Ef þú heldur utan um klippikort í kerfinu geta viðskiptavinir einnig greitt með því við innskráningu.
Hvernig byrja ég að nota sjálfsafgreiðslukerfið?
Þú hleður niður appinu 'Noona check-in' sem þú finnur bæði í Android eða Apple store og skráir þú þig inn með Noona HQ aðgangsupplýsingunum þínum.
Að lokum þarftu að hafa samband við okkur og við klárum að græja rest. Þú getur annað hvort haft samband símleiðis: 528-0080 eða í gegnum spjallbúbbluna.
Hvaða tæki þarf ég?
Það eina sem þú þarft er spaldtölva eða tölva. Þitt er síðan valið hvernig þú vilt stilla sjálfsafgreiðslukerfinu upp. Hafa það á borðinu eða kaupa stand.
Ef þú vilt að greitt sé fyrir tímann við innskráningu mun appið tengjast við posa við hliðina á spjaldtölvunni. Til þess þarftu að vera með posa frá Landsbankanum, Straumi eða Teya. Heyrðu í okkur ef þig langar að tengja posa við sjálfsafgreiðslukerfið.
Gangi þér vel og ekki hika við að heyra í okkur ef að eitthverjar spurningar vakna 🧡