Að læsa pöntunum þegar þær eru fullgreiddar

Hægt er að læsa pöntunum í spjaldtölvunni þegar greiðsla hefur verið tekin fyrir þeim vörulínum sem eru í pöntun. 

Til að kveikja á því þarf að :
1. Smelltu á þrjá punktana efst í hægra horninu í appinu
2. Smelltu á Settings
3. Smelltu á Orders
4. Hakaðu í "lock orders after paid in full"

Gott er að skrá sig út úr appinu og inn aftur tvisvar sinnum. 

Ath! þegar það er búið að læsa pöntunum með þessari virkni þá er ekki hægt að endurgreiða í gegnum eldri pantanir heldur þarf að búa til nýja pöntun í mínus upphæð til að senda í posa. Hægt er að sjá nánar hér hvernig það er gert.