Að setja upp valkosti (Variations) í SalesCloud HQ

Með valkostum getur þú boðið upp á mismunandi útfærslur á vöru, til dæmis stærð, mjólkurtegund eða aukaálegg. Hver valkostur getur haft áhrif á verðið og þú getur ákveðið hvaða valkostir eru sjálfkrafa valdir.

Skráðu þig inn á hq.salescloud.is og farðu í Catalogue. Byrjaðu á að búa til valflokk (Variation Attribute) og valkostasett (Variation Set), bættu svo valkostunum við og tengdu settið við vöruna eða viðburðinn. Farið verður yfir hvert skref hér fyrir neðan. 

1. Búðu til valflokk (Variation attribute)

Valflokkurinn er fyrirsögnin sem birtist yfir valkostunum, til dæmis Stærð, Mjólk eða Aukaálegg. Þar stillirðu líka hversu marga valkosti má velja.
Til að stofna Valflokk ferðu í Catalogue > Variation Attributes og smelltu á Add Attribute uppi í hægra horninu og settu inn eftirfarandi: upplýsingar.



NameHeiti valflokksins. Þetta er skyldureitur og birtist hjá viðskiptavin í sjálfsafgreiðslulausnum
DescriptionLýsing á valflokknum, ef við á.
Sort weightRöðun valflokksins. Lægri tala birtir flokkinn fyrr í röðinni í sölukerfinu og á sjálfsafgreiðsluskjá.
RequiredViðskiptavinur þarf að velja að minnsta kosti einn valkost í flokknum.
Select oneAðeins má velja einn valkost í flokknum.
Max selectionsHámarksfjöldi valkosta sem má velja. Skildu reitinn eftir auðan ef ekkert hámark á að gilda.
ColourLitakóði, til dæmis #FF0000.

Ef viðskiptavinur á að velja nákvæmlega eina stærð, virkjarðu bæði Required og Select one. Ef viðskiptavinur má velja allt að þrjár viðbætur, seturðu Max selections í 3 og hefur Required og Select one óvirkt.

Valreglurnar fylgja valflokknum í öllum settum sem nota hann. Ef ólíkar reglur eiga að gilda fyrir pizzur og drykki skaltu búa til tvo valflokka, til dæmis Pizzustærð og Drykkjarstærð.

2. Búðu til valkostasett (Variation set)

Valkostasett heldur utan um valkosti sem þú vilt geta tengt við eina eða fleiri vörur. Til dæmis getur settið Kaffivalkostir innihaldið bæði stærðir og mjólkurtegundir og verið tengt við latte, cappuccino og aðra kaffidrykki.
Til að stofna Variation Set ferðu í Catalogue > Variation Sets og smelltu svo á New uppi í hægra horninu og settu inn eftirfarandi:

  • Name – Gefðu settinu heiti.
  • Description – Skráðu stutta lýsingu, til dæmis „Stærðir og mjólkurtegundir fyrir kaffidrykki“.

Bæði heiti og lýsing eru skyldureitir. Einnig er hægt að hlaða upp mynd fyrir settið sem kemur þá upp í sjálfsafgreiðslulausnum eins og Kiosk.

3. Bættu við valkostum (Variations)

Búðu til einn valkost fyrir hvert val sem á að vera í boði, til dæmis Lítil, Stór eða Haframjólk. Hver valkostur tilheyrir einu setti og einum valflokki.
Til að búa til nýtt Variation ferðu í þrjá punktana undir Variation Settinu og smellir á View


Það fer með þig inn í Variation settið til að setja upp Variation og það er gert með því að smella á Add Variation uppi í hægra horninu. Settu inn eftirfarandi upplýsingar


LabelHeiti valkostsins. Þetta er skyldureitur.
AttributeValflokkurinn sem valkosturinn birtist undir, til dæmis Mjólk.
DescriptionLýsing á valkostinum, ef við á.
PriceUpphæð sem bætist við grunnverðið (+) 
Sort weightRöðun valkostsins.
ImageMynd af valkostinum. Myndir af einstökum valkostum birtast aðeins á sjálfsafgreiðsluskjá.

Verðið á valkostinum er verðbreyting. Ef latte kostar 690 kr. og haframjólk kostar +100 kr. verður heildarverðið 790 kr. Valkostir nota VSK-hlutfall vörunnar og hafa hvorki eigið vörunúmer (SKU) né strikamerki.

4. Tengdu settið við vöruna eða viðburðinn

  1. Farðu í Catalogue > Items í valmyndinni vinstra megin. Veldu vöruna sem þú vilt tengja við Variation settin.
  2. Smelltu á tannhjólið hægra megin á skjánum til að komast í stillingarnar.
  3. Veldu Varitations undir stillingunum. 
  4. Tengdu eitt eða fleiri valkostasett undir Variation sets
  5. Veldu undir Default variations þá valkosti sem eiga að vera sjálfkrafa valdir. Veldu þá úr settunum sem eru tengd við vöruna eða viðburðinn.
  6. Vistaðu breytingarnar.

Sjálfgefnir valkostir (Default Variation)

Sjálfgefnir valkostir eru forvaldir í sölukerfinu, netversluninni og á sjálfsafgreiðsluskjá. Starfsfólk eða viðskiptavinur getur tekið þá úr vali.

Ef sjálfgefinn valkostur kostar aukalega bætist upphæðin við grunnverðið.
Haltu þeirri upphæð utan grunnverðsins svo hún reiknist aðeins einu sinni.

Fyrirtækisstilling ræður því hvort áfram sé rukkað fyrir sjálfgefinn valkost sem er tekinn úr vali í sölukerfinu eða netversluninni. Á sjálfsafgreiðsluskjá er alltaf rukkað fyrir slíkan valkost, jafnvel þótt viðskiptavinur taki hann úr vali.

Sérstakar prentstillingar ráða því hvort sjálfgefnir valkostir birtast á bommum eða eldhúskvittunum og hvort þeir birtast yfirstrikaðir þegar þeir eru teknir úr vali.

Munur á sölukerfi, netverslun og sjálfsafgreiðsluskjá

StillingSölukerfi (POS)NetverslunSjálfsafgreiðsluskjár
Required, Select one og Max selectionsStarfsfólk getur valið hvaða samsetningu sem er.Valreglur gilda.Valreglur gilda.
Frádráttur frá verði (−)Upphæð dregst frá grunnverði.Upphæð birtist sem viðbótargjald.Upphæð birtist sem viðbótargjald.
Myndir af valkostumBirtast ekki.Birtast ekki.Birtast.
Röðun valflokka eftir Sort weightGildir.Gildir ekki.Gildir.